Ég er alin upp við myndlist. Var ung heimagangur í Myndlista- og handíðaskóla Íslands meðan mamma var þar við nám. Stundaði nám við sama skóla 1972-1974. Lengst samfellt var ég við nám í Myndlistarskólanum í Reykjavík á níunda áratugnum, einkum í teikningu, grafík og málun, allt að 20 stundir á viku með vinnu. Skrifaði ágrip af sögu skólans 1947-1987. Er ein af stofnfélögum Grósku í Garðabæ og á Álftanesi. Fékk fyrst áhuga á vatnslitatækni á námskeiði listafélagsins Dægradvalar á Álftanesi undir handleiðslu Gunnlaugs Stefáns Gíslasonar rétt fyrir árþúsundamótin. Þegar Vatnslitafélag Íslands var stofnað í ársbyrjun 2019 var ég meðal stofnfélaga og fékk strax brennandi áhuga á möguleikum vatnslitatækninnar. Sótti vatnslitanámskeið Keith Hornblower haustið 2019, Vicente Garcia 2022, Alvaro Castagnet 2022 og 2023 og Hermanni Pekel 2024. Er með nokkrar myndir til sölu á Apollo Art vefnum: https://apolloart.is/collections/anna-olafsdottir-bjornsson
Meira/More: Um sýningar og verkefni/About exhibitions and projects
Anna was brought up in an artistic home environment. From a young age she attended the Reykjavík Art School while her mother was a student there. Later she attended the school herself from 1972 - 74. In the eighties she returned to the Art School for a longer period, studying drawing, print making and painting for up to 20 hours a week while still working. She wrote a history of the Art School (1947-1987). Anna was a founding member of the art society of Garðabær and Alftanes. At the turn of the century she became interested in watercolour painting while on a course in a local art society under the guidance of Gunnlaugur Stefán Gíslason. Anna was also a founding member of the Watercolour Society of Iceland and discovered a passion for the medium. She subsequently attended a watercolour workshop in September 2019 under the guidance of Keith Hornblower, with Vicente Garcia 2022, Alvaro Castagnet 2022 and 2023 and Herman Pekel 2024. A few of my paintings etc. are for sale at Apollo Art: https://apolloart.is/collections/anna-olafsdottir-bjornsson